Það leit ekki út fyrir að sjóbaðið 27. ágúst 2006 yrði sögulegt fyrir nokkurra hluta sakir. Við vorum mættir þrír og til í tuskið. Andvari var svo léttar öldur léku við sandinn. Lofthiti var um 12 gráður og þetta varð tilefni pælinga um sögulega stund, því þegar hitamæling sjávar var yfirstaðin kom á daginn að hiti þar var sá sami. Upphófust því nokkrar hugleiðingar þarna úti í sjó, á dansinum á öldunum, hvort það gerðist ekki örsjaldan að hitinn væri sá sami í lofti og á legi.
En það voru þó ekki hin stóru sögulegu tíðindi. Hitamælirinn góði hafði verið í eigu Skítkalts í um viku þegar hér var komið sögu. Var þessa eina eign félagsins bundin með spotta við úlnliðs þess sem þetta ritar. Og reið það áfall þá ekki yfir, þarna “á hafi úti”, að sjómannshnúturinn (slaufan) sem maður hafði bundið flosnaði upp án þess að eftir væri tekið. Er skemmst frá því að segja að þarna hvarf hitamælirinn í svartan sæ. Hann hefur ekki sést síðan. Vonir standa til að hann hafi borið eða muni bera upp á Bakkatjarnafjöru og bíði manna næsta sunnudag. Annars verður höfðinu bara barið við steininn og annar mælir keyptur.
Síðan var farið í sund og þar gerðist ekkert. End of story.
Sea swimming went fine this day - except we lost our thermostat! Slipped off my hand after we had measured the water temp. Turned out to be 12C, the same as air temp. There were three of us this time. Much fun. Slightly windy, thus making waves and we bounced a bit up and down. Nothing wrong with that. Then swimming in Seltjarnarnes. All good fun, as usual.
Rétt eins og nafnið gefur til kynna er Skítkalt sjóbaðsfélag frekar en sjósunds. Það er enda alveg nógu göfugt og hressandi að skella sér í sjóinn hvernig sem viðrar og á hvaða tíma ársins sem er, án þess að þurfa í ofanálag að synda í einhverja ákveðna átt eða að einhverju marki. Þó er því ekki að leyna að ýmsa skítkalda félaga hefur nú í nokkurn tíma dreymt um að leggja út á dýpið (Bakkatjörn) og ná landi handan hafs (við Gróttu). Skemmst er frá því að segja að í dag létum við tveir (Guðni og Bjössi) þennan draum rætast og gekk allt eins og í sögu, svo sem hér segir:
Fyrst var sjávarhiti mældur, með glænýjum hitamæli sem telst vera fyrsta - og eina - eign sjóbaðsfélagsins. Hitastig reyndist vera 13 gráður. Veður var auk þess í besta lagi, blankalogn og sólskin. Var síðan lagt í hann. Sundkapparnir syntu að mestu bringusund og þóttust bera sig tignarlega við það; dýfðu höfði aldrei í sjó og sóttist því ferðin ögn hægar en ella. Einnig háði mönnum nokkuð reynsluleysi í skriðsundi og baksundi sem var þó reynt öðru hvoru. Hafdýpi var í mesta lagi tveir metrar eða svo og mestan hluta leiðarinnar hefði verið hægur leikur að nema staðar og standa í lappirnar. Það gera alvöru sjósundsmenn þó ekki… Landi var svo náð að lokum og mun ferðin hafa tekið um þrjú korter. Vegalengd er óviss en líklega 7-800 metrar, og vonandi eitthvað aðeins meira.
Landtaka í Gróttu tókst prýðilega og var ekki laust við að vegfarendur þar horfðu ögn hissa á þessa tvo fáklæddu sundmenn tiplandi á tánum yfir eiðið að fastalandinu. Má eiginlega segja að leiðin til baka hafi verið þyrnum stráð því það var frekar sárt að ganga berfættur í fjörugrjótinu og brugðu menn því á það ráð að skokka frekar á malbikaða stígnum ofan grjótgarðs, milli bílastæðis við Gróttu og þess við golfvöllinn. Fjölgaði þá enn forvitnilegum augngotum ferðalanga.
Síðan var svo farið í sund á Seltjarnarnesi samkvæmt venju og voru þar þá fyrir tveir aðrir sem höfðu skellt sér í sjóinn stuttu eftir að Gróttusundið mikla hófst. Gera verður ráð fyrir að þetta sund verði nú árviss viðburður hjá Skítköldu, þótt áherslan verði auðvitað sem fyrr á bað frekar en sund.
Þessi sunnudagur var án efa besti dagur sumarsins til þessa. Veðrið var gott, sjávarhæð fín og síðast en ekki síst var góð mæting, 13 manns. Fólk var í sumarskapi sem mátti m.a. sjá á því að Guðni mætti með frisbee diskinn.
Greinilegt er að stíf markaðssetning félagsins hefur skilað sér enda nokkur ný andlit mætt til að baða sig. Hitastig sjávarins hefur líklega verið um 13 - 14°C en rætt var að kaupa nýjan hitamæli svo hægt sé að mæla hitastigið í sjónum nákvæmar. Að lokum var svo haldið í Seltjarnarneslaugina þar sem fjöldi gesta var mættur til að njóta góða veðursins.
Það var grátt yfir og heldur hvasst þennan sunnudagsmorgunn en skemmtilegar öldur og mátuleg fjara. Hitastig sjávar má ætla að hafi verið um 12 gráður, örlítið hlýrra en lofthitinn sem var um 10 gráður.
Mæting var nokkuð dræm, hugsanlega vegna þess að um stærstu ferðahelgi ársins er að ræða. Þrír fóru þó út í og tveir horfðu á. Líklegt er að aðrir félagsmenn hafi baðað við aðrar strendur landsins á ferðalögum sínum enda þessi venja orðin ómissandi siður á sunnudagsmorgnum. Sjóbað dagsins tók um fimm mínútur og því næst var haldið í sundlaug Seltjarnarness.