Archive for September, 2006
Kenningin sannreynd

Það hefur lengi verið haft í flintingum, að sjóböð séu ein áhrifamesta leiðin til að losna við timburmenn.

Í dag var tilvalið að sannreyna þessa kenningu, þar sem Kim mætti svo skelþunnur, að hann var nánast gegnsær. Hann var eitthvað tvístígandi á ströndinni til að byrja með og líklegt að samstarf hugar og líkama hafi ekki verið upp á sitt besta. Hann tók þá á það ráð að taka allnokkuð tilhlaup, svo hvorki hugur né líkami hafði nokkuð að segja þegar fjöruborðinu var náð, og skall hann út í með miklum látum. Hiti sjávar var 10,1 gráða, og Kim saup kveljur í samræmi við það.

Smelltu á myndinaEftir nokkur veikluleg sundtök staulaðist hann upp úr og staðfesti að öll líkamleg einkenni áfengisneyslu kvöldið áður, væru horfin og kenningin því sönn. Fyrir þá sem skilja dönsku, má sjá hans útgáfu af ævintýrinu hér.

Annars mættu níu manns og veðrið var fínt.

Skítkalt F.C.

Smelltu á myndinaGóð mæting var í morgun þótt þungbúið væri í lofti – og haldið upp á þjóðhátíðardag Mexíkóa í gær þannig að sumir voru líka frekar þungir, eða þunnir… Sérstaklega gaman var að gamlir sótraftar voru dregnir á sjó, hinir dönsku Peter og Steen með fríðu föruneyti, og svo auðvitað okkar fína og finnska Tatti, sem býr að vísu núna í norður-Svíþjóð. Alls vorum við níu og mikið fjör. Einar sagði að sjávarhiti hefði verið 10,2 gráður og trúum við honum eins og venjulega. Að busli loknu var haldið í Seltjarnarneslaug þar sem allt var með friði og spekt – þar til Peter tók sitt trademark stökk ofan í heitari heita pottinn…
Í ljósi hins alþjóðlega yfirbragðs Skítkalts hefur komið til tals að gera heiti þess alþjóðlegra. Sem sé: Sjóbaðsfélagið Skítkalt F.C. Þetta myndi líka lyfta félaginu á stall stórfélaga eins og Manchester United F.C. og F.C. Barcelona. Eini munurinn væri sá að F.C. hjá okkur myndi ekki standa fyrir football club heldur það sem flestir útlendingar hrópa upp yfir sig í fyrsta sinn sem þeir skella sér í sjóinn: „Ai karamba, for helvete, scheise, merde, IT’s F…ING COLD.“ Svo þannig er það nú: Skítkalt F.C.

Good swim this morning, despite dark skies, and the fact that Mexico celebrated its independence day last night… Especially nice to see old “sótrafts”, Peter and Steen and the wonderful Tatti. Altogether nine people went in and our trusty friend Einar said the water temperature was 10,2 Celsius. Afterwards we went to Seltjarnarnes pool where all was fine, nice and quiet until Peter did his trademark jump into the hotter hot pot.
In light of Skítkalt’s international nature it has been suggested that we give the club a more international name, i.e. Skítkalt F.C. Skítkalt, as may seem obvious to some, is Icelandic for Shit-Cold. With the F.C. we would then also be like big clubs like F.C. Barcelona and Man. Utd. F.C. The only difference being that our F.C. would not stand for Football Club, but the initial comment of most foreign sea-swimmers when they go in for the first time: „Ai karamba, for helvete, scheise, merde, IT’s F…ING COLD.“ So welcome to the webpage of Skítkalt F.C

Haustið er komið !

Smelltu á myndinaÞað var heldur haustlegt um að litast í sjósundi þennan sunnudaginn. Rokið og rigningin aftraði þó ekki þeim 7 sundköppum sem mættu á Seltjarnarnesið til að baða sig í sjónum. Sjávarhiti var rúmar 10°c sem var eitthvað álíka og lofthiti.

Eftir buslið í sjónum var eins og vanalega haldið í sundlaug Seltjarnarness til að hita upp kaldann kroppinn.

Suðræn stemning

Smelltu á myndinaStemningin var eins og á suðrænni sólarströnd þegar átta þaulvanir meðlimir Skítkalts hittust í fádæma blíðu við Seltjörn í morgun. Svartur sandurinn í fjörunni var þægilega heitur eftir fleiri tíma sólskin, og hitaði á okkur tærnar á meðan við gerðum okkur klár til sunds. Eftirvæntingin var mikil eftir að komast í vatnið á þessum fallega degi, en það dró þó aðeins úr ákafanum hjá sumum þegar í ljós kom að vatnið var örlítið kaldara en undanfarna sunnudaga. Nýr hitamælir sjóbaðsfélagsins sýndi 11°C. Allir skelltu sér þó út í, og eftir stuttan sundsprett, beint í pottinn í Seltjarnarneslauginni.