Archive for October, 2006
Góð mæting á góðum degi

Smelltu á myndina
Við vorum átta galvaskir guttar sem skelltum okkur í sjóinn í dag. Veðrið var með eindæmum gott, örlítið hrím á ströndinni og sjórinn um sex gráður. Maður finnur hvernig hendur og fætur dofna eftir bara nokkur sundtök þegar sjórinn er svona kaldur, en annars er þetta svipað að því leiti, að það líða 20-30 sekundur og þá er líkaminn búinn að venjast þessu. Við vorum þó ekki lengi ofaní þetta skiptið, kannski um fimm mínútur þeir sem lengst voru, og svo skelltum við okkur í pottinn.

—-

We were eight glad lads that went to the see this morning. The weather was beautiful, a little bit of hrím on the beach and the wather about six degrees. Hand and feet get a little numb when the sea is so cold, but it only takes about 20-30 seconds in the water to get used to it. Allthough it was very nice, we only stad in the water for about five minutes and then straight to the pot.

Vetur konungur

Við vorum fjórir sem lögðum í glímu við Vetur konung í morgun, annan dag vetrar. Það var kalt en stillt, og sól í heiði. Mjög fallegur morgunn. En það var kalt, maður! Einar sagði sex komma tvær eða þrjár eða fjórar og maður getur svo sem trúað því. Gamli “góði” dofinn kom í putta og tær eftir sjóbaðið en að sama skapi var indælt að fá tilfinningu í útlimi aftur í heita pottinum.

Four of us celebrated the second day of winter by a fair bit of sea swimming. A bit shorter than usual though. Temperature only just above 6C, leading to numbness in fingers and toes. Was sweet to get some feeling again in the heiti pottur!

Þrútið var loft og þungur sjór…

Humm, hvað skal segja… Það var svo SKÍTKALT í gær og útlit fyrir afar dapra mætingu. Ýmsir skítkaldir máttarstólpar eru núna erlendis og eftir því sem næst verður komist féll sjósund því niður þennan sunnudag, í fyrsta sinn í marga mánuði, ef ekki lengur. Vonir standa til að þráðurinn verði aftur tekinn upp næsta sunnudag.

Well, people. Too many people away, and too f…ing cold yesterday. Hence, no swimming, apparently. At least I didn’t show up! But plan is to go next time!

Update: To keep up the tradition I went swimming in the sea in Denmark. Here is the proof: [video]

Svona fór um sjóferð þá …

Eins og oft vill verða þegar fer að kólna í veðri þá fækkar sjósundsfólki. Það er engin undantekning á því í ár sem sást á dræmri mætingu þennan sunnudaginn enda leiðindaveður, rok og rigning. Fjórir grjótharðir sundgarpar mættu þó og hlógu að Einari þegar hann gaf til kynna að sjávarhiti væri ekki nema 8°c. Svo var brunað í laugina eins og venjulega en kannski aðeins hraðar en undanfarið sökum kuldans.

Due to bad weather and increasingly colder sea, the seaswimmers are getting fewer. This can be good to be able to separate the men from the mice. The weather was bad this time windy and rainy with sea temparatur around 8°c. Hot pot as usual after the swim.

Maður getur ekki alltaf fengið tíu…

Jæja, það hlaut að koma að því. Í fyrsta sinn frá því mælingar hófust fór sjávarhiti í sjósundi undir tíu gráður. Mælirinn góði sagði rúmar níu gráður, kannski 9.5 sýndist manni. Ekki vantaði þó veðurblíðuna í morgun; nær blankalogn, sólskin og loftið tandurhreint. Sjósundið var sérlega hressandi. Við vorum fimm í þetta sinn, auk hirðljósmyndarans Fredriks. Sjáið hans frábæru landslagsmyndir á fredrikholm.se

All right, it had to happen. For the first time since time began, well, since we started measuring the temperature again this summer, the water temp went below 10C. Was about 9-9,5 degrees. Weather was gorgeous, though. Calm, sunshine, and clean air. The swimming was especially refreshing. There were five of us, plus Skítkalt’s royal photographer, Fredrik Holm. See his amazing landscape photos, fredrikholm.se