Sjósundið þennan kuldalega sunnudaginn á eflaust eftir að fara í sögubækur Skítkalt. Þar sem að lítið hafði verið um mætingu síðustu tvo sunnudaga og eftir að svívirðingar höfðu borist hinu megin af hnettinum þá var ákveðið að fara í sjóinn þrátt fyrir að vetur konungur hafi ekki verið alveg sammála. Veðrið undanfarið hafði verið nokkuð gott, frost og stillt og var því vitað að hitastig sjávarins var farið að nálgast ískyggilega 0°c, en í ljósi þess var ákveðið á laugardeginum að fara í sjóinn á sunnudeginum. Aðfaranótt sunnudagisins kyngdi hinns vegar niður snjó og var nánast ófært um götur borgarinnar og töfðust menn á leið í sjósund við að hjálpa öðrum vegfarendum að komast leiðar sinnar. Þegar á ströndina var komið leit heldur kuldalega út en þar sem að þeir menn sem þangað voru komnir kalla ekki allt ömmu sína var ekki eftir neinu að bíða en að skella sér í sjóinn. Baðið sjálft tók ekki langan tíma þar sem að sjórinn var í ekki nema um 0,5°c og við það hitastig þolir líkaminn ekki lengi við þó að um sé að ræða mikil sjósunds hreystimenni.
Þegar menn voru búnir að henda á sig fötunum þá var haldið í Seltjarnarneslaugina þar sem að aldrei hafa verið jafn fáir í sundi á sunnudagsmorgni. Fyrir utan okkur fjóra þá voru 2 að synda.
Ég heyrði það í fréttum að ekkert sjósund hefði átt sér stað þennan sunnudag vegna óvenju stífrar golu. Ekki man ég eftir því að sjósundi hafi áður verið frestað vegna veðurs - nema að við fórum einu sinni í Nauthólsvíkina því þar var minni vindur…
Eitt það skemmtilegasta við sjósundið er einmitt að upplifa hvernig öldurnar svifta manni til og frá eins og korktappa. Skemst er að minnast Taru sem var illa leikinn af samspili sjávarþangs og öldugangs — en þar sem hún var að reyna að staulast í land var það þangið sem dró hana út aftur um leið og alda brotnaði yfir hana og eftir neðansjávarbrölt í meira en 5 sekúntur komst hún loks á lappir aftur og gekk á land skreytt sjávarþangi frá toppi til táa — og við hinir hlógum okkur máttlausa…
Það hefði verið gaman að lesa frétt og skoða myndir af Bjössa eða Guðna eða Paul eða … í svipuðum aðstæðum og Taru lenti í!
Einar Örn