Archive for December, 2006
Og þá voru eftir tveir…

Smelltu á myndinaÞað hefur verið fámennt í sjósundi undanfarnar vikur, og stundum hefur enginn skellt sér í kaldan sæ þótt sunnudagur sé og hraustir menn á landinu. Við Bjössi höfum þó drifið okkur tvisvar í kælingu, núna í dag og fyrir viku. Í dag gerðist ekkert í frásögur færandi; sjávarhitinn var einhvers staðar milli hálfrar og einnar gráðu ef eitthvað er að marka mælinn Einar. En síðast var sjóbaðið magnað. Háflóð var og hávaðarok; öldurnar hærri en við höfum áður séð; þær feyktu manni til og frá, upp og niður, og útsogið var fjarska sterkt. Við busluðum aðeins en syntum ekkert út enda hefði það jafnvel verið hættuspil. Öldurnar skullu á grjótinu þar sem sjóbaðsfólk getur venjulega haft fataskipti í rólegheitum og höfðum við aldrei séð annað eins. Því miður vorum við ekki með myndavél en skelltum okkur aftur út eftir og tókum myndir um það bil tveimur tímum síðar, en þá hafði vind lægt og fjarað nokkuð.

Short English summary: We went swimming today, nothing noteworthy happened, but last week a storm had been blowing and tide was higher than we have ever seen. Bjössi and I were thrown around in the sea and dared not swim that far out. Was great fun, still.