Archive for January, 2007
Kalt? Nei, skítkalt…

Við vorum ekki frá því, við Bjössi og Paul, að sjaldan eða aldrei hafi sjórinn verið jafnkaldur og núna síðasta sunnudag. Líklega var um níu stiga frost og allt gaddfreðið á ströndinni; sandurinn eins og steinlögð stétt og stingandi strá eins og steypustyrktarjárn standandi upp úr hvítum minimalistískum steinkumböldum á fokheldu stigi uppi í Grafarholti. Anyway, Einar hélt því fram, eftir að hafa verið tæpa mínútu max í sjónum að hitastigið væri undir frostmarki. Hann er nú alltaf svo svartsýnn en líklega lafði sjávarhitinn öðru hvoru megin við núllið og ekki meira en það. Þetta var því mjög stutt bað. Sem betur fer var stillt og því alveg í lagi að koma sér í spjarirnar eftir sundsprettinn. Síðan auðvitað heitur pottur og þá komust limir til lífs á ný. Það er nú alltaf gott!