Nú er sumar, gleðjist gumar
April 29th, 2007
Nú í sunnudag, og einnig fyrir viku, var sjósynt af nokkru kappi. Ekki er þó enn orðið það heitt í sjóinn að menn geti verið lengi að busla, en sá tími lengist þó með hverju skipti. Við Bjössi vorum það duglegir - og ég leyfi mér að monta okkur (humm, þ.e. mig) af því að við örkuðum fyrst upp á Botnssúlur í dag og svo var sjósundið síðdegis. Gangan var fjör en maður mælir þó ekki með þessu í hverri viku.
English: We have been sea-swimming, today and last Sunday. Water’s getting warmer. Apologies for shorter English version!
