Tímamet ársins
June 11th, 2007
Það voru sex gallvaskir piltar sem stungu sér í sjóinn í dag. Markmiðið var að synda í að minnsta kosti fimm mínútur, en þegar þeim var náð var ekkert því til fyrirstöðu að bursla í aðrar fimm mínútur. Þeir sem voru lengst voru því í tíu mínútur ofan í.
Það var mikill keppnishugur í mönnum og skyndilega var komin af stað landskeppni milli Íslands og Danmörku um hver gæti verið lengur ofaní. Daninn fór upp úr eftir tæpar sjö mínútur og þurfti því að játa sig sigraðan fyrir íslendingunum og lofaði hann að tala aldrei aftur um 14:2.
Sjóbaðsfélagið Skítkalt hefur undanfarnar vikur hist á ströndinni við Gróttuvita klukkan 11.00 á sunnudögum. Nú þegar komið er hásumar eru menn ekkert að hringja sín á milli, heldur mæta bara á svæðið.