Tími fyrir svifdisk
July 15th, 2007
Veðrið var með eindæmum í dag og hitastigið eftir því, eða um 14 gráður. Þrátt fyrir það vorum við aðeins fjórir sem fórum í sjóinn. Við lékum okkur aðeins með svifdiskinn hans Guðna eins og á sannri sólarströnd en fjaran var svo mikil að sundið var í styttra lagi.
Senn kemur að hinu árlega Gróttusundi, þar sem synt er eftir ströndinni og út í Gróttuvita. Hitastig sjávar er heppilegt en við bíðum eftir góðum degi með lygnum sjó.