Archive for November, 2007
Frekar skítkalt…

Við vorum tveir (Matti og Bjarki) sem fórum síðasta sunnudag klukkan 11. Það leyndi sér ekki að veturinn er að nálgast, sjórinn um 6 gráður og skítkalt þegar við komum upp úr. Engu að síður var þetta mjög gaman og hressandi. Heiti potturinn í Seltjarnarneslauginn var sjóðheitur og sársaukinn í tám og fingrum þvílíkur að litlu munaði að við færum að skæla.

Bjössi í BaikalMætingin síðastliðna sunnudaga hefur ekki verið upp á marga fiska hjá sjóbaðsfélaginu. Hugsanleg skýring er að ein aðalsprauta félagsins, Björn Helgason, er að kynna starfsemina í öðrum heimshlutum. Á meðfylgjandi mynd sést hann sýna rússum hvernig á að gera þetta.