Við vorum fjögur sem skelltum okkur í sjóinn kl. 15:30 í dag (breyttur tíma vegna sjávarfalla). Þetta var hressandi að venju, smá skúrir sem gerðu að verkum að við vorum ansi snögg að henda okkur í spjarirnar að loknu sundi. Skyggni var ágætt, gráð og hiti 12 stig (sjávarhiti). Við ræddum um það að koma nú skikk á skráningu, skrif og annað í tengslum við okkar elskaða Skítkalt. Guðni, Bjössi, Bergþór og nýliðinn Edda ákváðu sumsé að halda núna skrá yfir mætingar og sá sem mætir best fær verðlaun. Það er ekki búið að ákveða hver þau eru og hvað þau skulu heita en tillögur óskast…
Title: Sjóbað
Location: Seltjarnarnes
Description: Haustbað
Start Time: 15:30
Date: 2008-08-31
Góð mæting var í sjóbaðið seinasta sunnudag og samtals voru það 9 fílhraustir einstaklingar sem skelltu sér til sunds í sólheitri víkinni. Auk hefðbundnu vitleysinganna Bjössa og Bergþórs þá voru þar Áslaug sem fer brátt að teljast sem hefðbundinn vitleysingur, Sindri að fara í sitt annað sinn og svo 5 nýliðar sem er líklega met. Nýliðarnir voru Gunna og Hannes sonur hennar, snoðhausinn Hjalli, þríþrautarkappinn Siggi Smára og Ástralinn Henry sem er víst vanur ögn hlýrri sjó
Eftir frisbí og busl í flæðarmálinu ákváðu fjórir þeirra, Sindri, Siggi, Bjössi og Bergþór, að skella sér yfir víkina útí Gróttu sem samkvæmt Google Earth er rétt um 900 m svaml. Sundið var hið notalegasta í lágdauðum sjónum og einhverjum mínútutugum seinna stigu þeir á land. Árlegu Gróttusundi telst því lokið nema að yfirsjóbaðarinn Guðni vilji fara aftur seinna í sumar.
Gunna var með myndavél og náði nokkrum góðum myndum og eru fjórar þeirra hér í myndaalbúminu og afganginn má finna hér. Einnig er hægt að virða fyrir sér myndir úr sjóbaði fyrr í sumar og jafnvel skoða myndband sem Ari gerði.
Næsta ferð verður væntanlega á sunnudaginn kemur og vonandi sjá jafn margir sér fært að mæta