Archive for September, 2008
Sjóbað

Title: Sjóbað
Location: Seltjarnarnes
Start Time: 14:00
Date: 2008-09-27

Hetjur

Þá er hinni vonandi árlegu uppskeruhátíð sjóbaðsfélagsins Skítkalt lokið. Tókst hún vel í alla staði og sýndu meðlimir að þeir eru ekki einungins miklar sjóbaðshetjur heldur einnig framúrskarandi gítarhetjur. Nú er bara að gíra sig upp fyrir kólnandi sjóböð vetrarins og láta sjá sig sem oftast.

Blautt land, blautur sjór

Veðurguðirnir víðfrægu voru ekki alveg á bandi sjóbuslkappa í dag, laugardag. Kannski hin óvenjulega tímasetning hafi farið svona illa í þá. Anyway, það sumsé hellirigndi, alveg upp að öxlum eins og karlinn sagði, þegar við þremenningarnar, ég, Bjössi og nýliðinn Kristján, týndum af okkur spjarirnar og skelltum okkur svo í þrútinn og þungan sjó. Það reyndist nú bara notalegt og við vorum dágóða stund ofan í, svo dágóða reyndar að við gættum ekki að því hve hratt flæddi að, sem leiddi til þess að skóbúnaður Bjössa tókst á flot í fjörunni og þurfti hann að sína gífurlegt snarræði til að ná þeim aftur úr greipum Ægis (allt alveg satt nema kannski síðustu orðin…).

Laugardagssjóbað

Title: Laugardagssjóbað
Location: Seltjarnarnes
Description: Sjóbað, sérstaklega ætlað þeim sem hafa ekki farið ennþá og hafa því ekki uppfyllt skilyrðin fyrir uppskeruhátíðina
Start Time: 16:00
Date: 2008-09-13

Uppskeruhátíð skítkaldra sjóbaðara

Næstkomandi laugardag verður haldin uppskeruhátið skítkaldra sjóbaðara. Haldið verður upp á vel lukkað sjósundssumar þar sem fjöldinn allur af nýliðum hefur látið sjá sig í sjónum.
Inngönguskilyrðin eru einföld, viðkomandi þarf að hafa farið í sjóbað við íslandsstrendur. Ef einhver hefur áhuga á að mæta í gleðskapinn en hefur ekki staðist inngönguskilyrði þá verður stefnt á að hafa laugardagssjóbað þar sem fólk getur þreytt hið erfiða inngöngupróf.
Fjörið hefst í Skálagerði 5 um kl 20:00 á laugardagskvöldið þar sem boðið verður upp á kaldar veitingar og svala stemmingu.

Og þá voru eftir tveir…

Það var fámennt í sjónum 7. sept. Við Paul mættum í þungbúnu veðri, en þurru. Rut dóttir mín var með í för en fór ekki í sjóinn samkvæmt hinni ströngu r-reglu (börn undir 16 fara ekki ef það er r í mánaðarheitinu). Hundur í flæðarmálinu fylgdist með okkur en annars bar fátt til tíðinda. Alltaf er þetta nú jafn hressandi, samt!

Sjóbað

Title: Sjóbað
Location: Seltjarnarnes
Start Time: 11:00
Date: 2008-09-07

Skráningar

Nú er sumarið á enda og margir nýjir meðlimir hafa látið plata sig í sjóinn. Til að sjá hverjir eru nógu harðir til að mæta í vetur höfum við ákveðið að hefja formlegri skráningar á sjóböðum þar sem kemur fram hverjir mæta, hitastig sjávar og veðurskilyrði.
Allt þetta má sjá hérna, einnig er hægt að sjá mætingarlistann hér vinstra megin á síðunni undir Tenglar/Links.