Skítkalt er félag áhugafólks um sjósund sem var stofnað þann 20. september 2003 og er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að dýfa sér ofan í kaldann sjóinn og fá sér sundsprett.
Félagið hittist hvern sunnudag við Seltjörn, milli Nesvallar og Gróttu, og eftir sundsprett eins og hverjum og einum hentar, er vinsælt að slaka aðeins á í heitu pottunum í Seltjarnarneslauginni.
Fyrir þá sem hafa aðgang að Google Earth þá er hér að finna nákvæma staðsetningu