Gróttusund í góða veðrinu

Góð mæting var í sjóbaðið seinasta sunnudag og samtals voru það 9 fílhraustir einstaklingar sem skelltu sér til sunds í sólheitri víkinni. Auk hefðbundnu vitleysinganna Bjössa og Bergþórs þá voru þar Áslaug sem fer brátt að teljast sem hefðbundinn vitleysingur, Sindri að fara í sitt annað sinn og svo 5 nýliðar sem er líklega met. Nýliðarnir voru Gunna og Hannes sonur hennar, snoðhausinn Hjalli, þríþrautarkappinn Siggi Smára og Ástralinn Henry sem er víst vanur ögn hlýrri sjó :)

Eftir frisbí og busl í flæðarmálinu ákváðu fjórir þeirra, Sindri, Siggi, Bjössi og Bergþór, að skella sér yfir víkina útí Gróttu sem samkvæmt Google Earth er rétt um 900 m svaml. Sundið var hið notalegasta í lágdauðum sjónum og einhverjum mínútutugum seinna stigu þeir á land. Árlegu Gróttusundi telst því lokið nema að yfirsjóbaðarinn Guðni vilji fara aftur seinna í sumar.

Gunna var með myndavél og náði nokkrum góðum myndum og eru fjórar þeirra hér í myndaalbúminu og afganginn má finna hér. Einnig er hægt að virða fyrir sér myndir úr sjóbaði fyrr í sumar og jafnvel skoða myndband sem Ari gerði.

Næsta ferð verður væntanlega á sunnudaginn kemur og vonandi sjá jafn margir sér fært að mæta

Sjósund

Title: Sjósund
Location: Nauthólsvík
Description: Morgunsund í Nauthólsvíkinni
Start Time: 08:00
Date: 2008-05-22

Synda selir

Síðustu tvo sunnudaga hefur það helst borið til tíðinda að selur nokkur hefur sést nánast upp við flæðarmálið þegar við kapparnir höfum verið að busla. Einnig má geta þess að sjórinn er orðinn ansi heitur - tæpar sjö gráður síðast - og er því orðið lítið mál að svamla dágóða stund. Vonir standa því til að fleiri fari að mæta og njóta þeirrar heilmiklu hressingar sem sjósund er án nokkurs vafa. Menn stíga upp úr sjónum endurnærðir á sál og líkama og til í hvað sem er!

Last two Sundays a seal has been swimming near us. As for the sea, it is getting quite warm so you can really swim/move around for a good amount of time. Thus, we are hoping that more and more people will come and join us and enjoy this refreshing activity which improves body and mind!

Sjósund

Title: Sjósund
Location: Seltjarnarnes
Start Time: 14:30
Date: 2008-05-18

Sjóbað 4.maí

Þá er komið sumar og tími á sjóbað. Samkvæmt sjávarfallasíðunni þá er fjara kl 11 þannig að það verður farið í sjóinn um kl 15. Búast má við góðu veðri og ef veðurspá gengur eftir má búast við hlýjasta degi ársins á sunnudaginn.

Nýliðar eru sérstaklega boðnir velkomnir á þessu fyrsta baði sumarsins. Einnig ef það eru einhverjir sem styðjast við þá reglu að fara aðeins í sjóinn í “R”-lausum mánuðum, þá er sá tími brostinn á einnig.

“Þetta var mjög snöggt bað”

Úff, sjórinn hefur svo sem verið kaldari, og það var reyndar þurrt, en sjaldan eða aldrei hefur verið jafn skítkalt og núna á sunnudaginn var. Næðandi vindurinn læsti sig inn í hvert bein, sandurinn smaug út um allt og maður þurfti að finna næsta grjóthnullung og setja ofan á spjarirnar svo þær fykju ekki á haf út. Síðan stukkum við þrír út í, Guðni, Bjössi og Paul, og nánast um leið upp úr aftur. Þetta hefur verið svona hálf mínúta í mesta lagi og hálfri mínútu of mikið, fannst okkur fyrst eftir þetta helv… rugl. En svo hvarf það nú allt í heita pottinum eins og venjulega. En hvort við förum aftur næstu helgi, eða bíðum aðeins, það er önnur spurning…

Nýr liður á skitkalt.com

Þar sem að sjóbaðsferðir ráðast að nokkru leiti af veðri og sjólagi þá munum við reyna að tilkynna tímasetningu á helgarsjóbaði með smá fyrirvara. Við reynum yfirleitt að mæta á sunnudögum kl 11:00 en ef svo hittir á að það sé of mikil fjara þá getur verið tímasetningin breytist aðeins. Það er því um að gera að fylgjast með hérna á heimasíðunni ef þig langar til að mæta.

Sunnudagur 30. mars

Tími: 11:00
Veður: Búast má við björtu veðri, hita um frostmark og smá vindi.

“Oh, hvað þetta er vont”

“Oh, how it hurts”, is what the heading says. Today’s famous five consisted of Bjössi, Guðni, Paul, Bergþór and Finland’s finest, Taru who was not going to have it said about her that she shirked from swimming twice in a row. So in we all went, on a cold and windy Sunday afternoon. The snowflakes quickly covered our clothes as we tried to stay at least a minute in the sea which measured about one degree, if our trusted Einar is to be believed. God, it was cold, but the worst part was really putting the clothes on, as the wind blew and snow was all over. Fingers were numb, toes were numb-numb and other small bodyparts were numb-numb-numb.

We all drove back in Bjössi’s car, after he had finally managed to find the carkeys with his numb fingers, and when he looked at the three of us in the backseat, Guðni, Bergþór and Paul, he could not but laugh: There we were, shivering like hell, with watery drops hanging from our noses, miserable expressions and mumbling something like “fuck it was cold”, “god, my fingers hurt” and “oh no, the feeling is coming back in the toes, and it HURTS”.

As usual, the heiti potturinn saved us all and next Sunday we will have forgotten the pain (or the Sunday after that…)

No vodka today…

The spring is just around the corner. Pouring rain sends the rest of the winter down the drain and seaswimming in Iceland no longer comes with the risk of a sudden death by the shore. Guðni, Paul, Bjössi and Matti ran out to the beach, excited to get in the water and feel the Golf Streams preview of the long awaited summer. They where joined by Taru, a Skítkalt member from back in the days, who in despite of being from Finland, did not bring any vodka or actually go into the water. Her nationality is now doubted within the Skítkalt society.

Einar, the thermometer with the happy alligator face, said 2-3 degrees. Another great day for a salty bath in the Atlantic ocean.

Kaldasta sjóbað ársins

Þá er lokið líklega kaldasta sjóðbaði ársins og gott ef kuldinn undanfarið hafi ekki gert það að verkum að sjaldan hafi meðlimir Sjóbaðsfélagsins baðað sig í jafn köldum sjónum. Hitastigið var líklega um -0,5 gráður en hitastig sjávarins getur farið í um -1 til -2 gráður út af saltinu.

Samhliða því að vera kaldasta bað ársins var það sömuleiðis það styðsta þar sem líkaminn ræður illa við kuldann en sársaukinn sem fylgir þegar blóðið fer að renna fram í fingurgómana er einnig eitthvað sem erfitt er að lýsa.